Banner02
Flokkar
Framleiðendur
Notkunar skilmálar.
Almennir notkunarskilmálar:


Þegar viðskipti eiga sér stað á heimasíðu Msport.is gilda eftirfarandi almennir skilmálar:

Msport leggur mikið upp úr öryggi viðskiptavina sinna. Notast er við fullkomnustu veflykla í samvinnu við Borgun ehf..

Um leið og viðskiptavinur hefur sett vörunar í körfuna og smellir á ganga frá pöntun fer hann inn í læst umhverfi þar sem allar upplýsingar um viðskiptin eru dulkóðuð. Til að auka öryggið enn frekar þá er viðskiptavinur fluttur yfri til Borgunar ehf til að ganga frá greiðslu.
Við þessa aðferð skapast mikið öryggi því allar kortaupplýsingar eru slegnar inn á vefsvæði Borgunar og sér Msport því aldrei kortanúmer viðskiptavina.
Sá sem verslar í þessu umhverfi getur verið öruggur um að upplýsingarnar hans sem hann skráir eru ekki aðgengilegar fyrir utanaðkomandi aðilum. Engin kortanúmer eru vistuð í gagnagrunnum Msport.is né Msport ehf.

Msport.is mun gera allt í sínu valdi til þess að viðhalda réttum verðum í netversluninni. Þó gætu komið upp þær aðstæður að innsláttarvillur eða annað eigi sér stað og áskilur Msport.is sér rétt til að endurgreiða vöru að fullu sé um prentmistök að ræða í netverslun Msport.is. Öll verð eru með virðisaukaskatti.

Msport.is áskilur sér rétt til að afgreiða vörur innan fimm virkra daga frá pöntun, ef vara er til á lager. Getur komið upp sú staða að vara sé ekki til þá getur afhending dregist um allt að 3 vikur. Flest allar pantanir eru þó afgreiddar til Íslandspósts samdægurs eða daginn eftir.

Að öðru leiti gilda lög um lausafjárkaup nr. 50/2000.


Skilareglur og skipti:
Skilafrestur vöru er 30 dagar frá því upprunalega varan var keypt og er varan endurgreidd að fullu sé hún ónotuð og í upprunalegu umbúðunum. Sendingarkostnaður er dregin frá endurgreiðslu. Ekki er hægt að skila sérpöntunum, svo sem varahlutum sem eru sérpantaðir.

Einnig er hægt að skipta vörunni ef hún passar ekki. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegu umbúðunum. Ný vara er send um leið og varan sem passaði ekki berst til Msport.is. Msport.is borgar sendingarkostnaðinn (þ.e.a.s. til viðskiptavinar) þegar vöru er skipt í fyrsta skiptið. Frestur til að skipta vörunni eru 30 dagar frá því upprunalega varan er greidd.
Best er þó að hafa samband í tölvupósti á sala (hjá) msport.is eða hringja í 6186400 ef einhverjar spurningar vakna.
Msport.is leggur sig fram í að gera viðskiptavini ánægða.


Greiðslumöguleikar:
Hægt er að greiða fyrir vörur með greiðslukorti eða leggja (greiða) beint inn á bankareikning Msport ehf. í heimabanka viðkomandi eða bankaútibúi.


Ábyrgðir:
Samkvæmt landslögum veitir Msport.is 2ja ára neytendaábyrgð á öllum þeim vörum sem seldar eru í netverslun Msport.is.
Flestar vörur eru með ábyrgð framleiðanda á bak við sig en við munum gera allt í okkar valdi til að leysa úr þeim vanda sem upp kann að koma. Vinsamlega sendið tölvupóst á sala(hjá)msport.is ef þörf er á nánari upplýsingum varðandi ábyrgð.


Höfundarréttur:
Msport ehf er rétthafi af öllu því efni sem birt er í netverslun Msport.is.
Erlend vörumerki á síðunni eru í eigu viðkomandi erlends aðila. Vörumerki Msport.is er í eigu Msport ehf.
Áfram
Dómar
Það eru engir dómar fyrir vörur